flugfréttir
Kröfuhafar Air Berlin ætla í sakðabótamál gegn Etihad
Airbus A320 þota Air Berlin með merkingar Etihad Airways
Etihad Airways á von á lögsókn frá þeim kröfuhöfum sem gera tilkall í þrotabú Air Berlín sem varð gjaldþrota í október í fyrra.
Kröfuhafar saka Ethiad Airways um að hafa brotið lög þar sem félagið kom Air Berlin ekki til bjargar og segir í málsgögnum
að félaginu bar skylda til að bregðst við fjárhagsvanda flugfélagsins þýska þar sem Etihad átti næstum þriðjungshlut í Air Berlin.
Air Berlin var annað stærsta flugfélag Þýskalands á eftir Lufthansa en taprekstur félagsins árið 2016 nam 95 milljörðum króna
en eftir að Etihad Airways ákvað að hætta að setja fé í rekstur félagsins fór Air Berlin fram á gjaldþrotameðferð í ágúst 2017.
Kröfuhafar segja að Etihad Airways hafi eyðilagt rekstur Air Berlin með því að hætta öllum fjárhagsstuðningi við félagið
á erfiðum tímum.
Fram kemur að kröfuhafar ætla að fara fram á skaðabætur upp á einn milljarð evra sem samsvarar 122 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.