flugfréttir
Turkish Airlines pantar 50 breiðþotur frá Boeing og Airbus
- Panta 25 A350-900 þotur og 25 Boeing 787-9 þotur
Turkish Airlines mun fá fyrstu Airbus A350-900 þoturnar afhentar árið 2019
Turkish Airlines hefur lagt inn pöntun bæði til Boeing og Airbus í alls 60 nýjar farþegaþotur en pöntunin samanstendur bæði af breiðþotum og minni þotum.
Samningurinn við Airbus er í formi samkomulags um kaup á 25 þotum af gerðinni
Airbus A350-900 með kauprétti á fimm þotum til viðbótar.
Fyrstu A350 þoturnar verða afhentar til Turkish Airlines strax á næsta ári og munu
afhendingar standa fram til ársins 2024.
Pöntunin til Boeing hljóðar einnig upp á 25 breiðþotur en félagið hefur gert samning um kaup
á tuttugu og fimm Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-9 með kauprétti á fimm
þotum til viðbótar.
Pantanirnar hljóma því upp á kaup á alls 50 þotum með möguleika á að panta 10 til viðbótar.
Andvirði pöntunarinnar hjá Airbus í A350 þoturnar tuttugu og fimm hljóðar upp á 775 milljarða
króna en pöntunin í 25 Boeing 787-9 þotur nemur 697 milljörðum króna og eru báðar
pantanirnar því metnar á 1.472 milljarða króna samkvæmt listaverði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.