flugfréttir
Allir flugturnar á Nýja-Sjálandi verða mannlausir í framtíðinni
- Stefna á að koma upp fjarstýrðri flugumferðarstjórnun á næstu árum
Nokkrir flugvellir í Evrópu hafa nú þegar tekið upp fjarstýrða flugumferðarstjórnun
Það gæti orðið erfiðara á næstu árum fyrir flugumferðarstjóra að fá starf á Nýja-Sjálandi en nýsjálensk stjórnvöld stefna á að hætta alfarið með hefðbundna flugturna og taka upp fjarstýrða flugumferðarstjórn á öllum flugvöllum landsins og verður flugumferð stjórnað úr stjórnstöðvum annars staðar frá.
Flugmálayfirvöld ætla að að byrja á því að skipta út hefðbundnum flugturnum með Digital Air Traffic Control (DATC) tækninni á næstu
tveimur árum og er stefnt á að í náinni framtíð verði allri flugumferð um nýsjálenska flugvelli stjórnað frá
nokkrum stjórnstöðvum.
Þessi tækni hefur nú þegar verið tekin í notkun og þá meðal annars í Svíþjóð en flugvellir með mannlausum
flugturni eru útbúnir veðurbúnaði, hljóðnemum, ljósgeislakerfi ásamt öðrum tækjum sem senda upplýsingar til stjórnturnsins sem staðsettur er annars staðar og geta flugvélar því lent og tekið á loft á flugvelli
þótt ekki sé neinn á staðnum til að stýra umferðinni.
Digital Air Traffic Control (DATC) verður tekin í notkun á fyrstu flugvöllunum á Nýja-Sjálandi á næstu tveimur árum
Með háskerpu myndavélakerfi verður hægt að þysja ásýnd myndavélarinnar og koma auga á ef aðskotahlutur
er á brautinni og í slæmu skyggni verður hægt að skipta yfir á innrauða myndavél til að koma auga á flugvélar
ef þoka er yfir vellinum.
Ef tilraunir ganga vel þá verður ekki farið í að endurnýja til að mynda flugturninn á flugvellinum í Auckland
sem er orðin 52 ára gamall þar sem þessi nýja tækni mun leysa hann af hólmi.
London City flugvöllurinn stefnir á að taka upp fjarstýrða flugumferðarstjórn og verður umferð um völlinn stjórnað
frá stjórnstöð í Swanwick sem er í 110 kílómetra fjarlægð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.