flugfréttir
Flugslys í Nepal: Bombardier-flugvél brotlenti í Kathmandu
- 78 farþegar voru um borð í vélinni
Mikinn reyk lagði frá flaki vélarinnar
Farþegaflugvél af gerðinni Bombardier Dash Q400 brotlenti í morgun í aðflugi að flugvellinum í Kathmandu í Nepal.
Vélin, sem var frá flugfélaginu US-Bangla Airlines, var að koma frá Dhaka í Bangladesh og var þrumuveður
að ganga yfir flugvöllinn og nágrennið þegar vélin var í aðflugi.
Um borð í vélinni voru 78 farþegar en ekki hafa enn borist fregnir af afdrifum þeirra en fram
kemur að slökkviliðsmenn hafi náð að draga sautján farþega úr flakinu og flytja á sjúkrahús í borginni.
Samkvæmt erlendum fjölmiðlum þá kemur fram að vélin hafi brotlent á fótboltavelli nálægt flugvellinum.
Slysið átti sér stað klukkan 8:35 í morgun að íslenskum tíma og er því ekki enn vitað um afdrif allra farþeganna
og áhafnarinnar.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.