flugfréttir
Airbus missir síðustu pöntunina í A350-800
- Asiana Airlines hættir við síðustu pöntunina sem eftir var
Tölvugerð mynd af Airbus A350-800 í litum Asiana Airlines
Kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur hætt við pöntun sína í átta Airbus A350-800 þotur og uppfært pöntunina í stærri tegundina, Airbus A350-900.
Asiana Airlines var eina flugfélagið sem var eftir sem hafði pantað Airbus A350-800 þotuna og er því núna
ekkert flugfélag sem á inni pöntun hjá Airbus í þessa undirtegund.
Airbus A350 kemur í þremur útgáfum, Airbus A350-800, -900 og A350-1000. Upphaflega
höfðu 11 viðskiptavinir pantað A350-800 en öll flugfélögin hafa afturkallað pöntunina eða uppfært hana
í stærri útgáfur.
Þeir viðskiptavinir sem höfðu áður pantað Airbus A350-800 voru flugvélaleigan AerCap, Afriqiyah Airways,
Aircraft Purchase Fleet, American Airlines, Bangkok Airways, CIT Group, Hawaiian Airlines, Kingfisher
Airlines, Libyan Airlines, Qatar Airways og Tunisair.
Airbus hefur enn ekki smíðað fyrstu Airbus A350-800 þotuna en búið er að afhenda 154 eintök af
Airbus A350-900 þotunni og fyrsta Airbus A350-1000 þotan var afhent til Qatar Airways í febrúar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.