flugfréttir
Framtíð South African tvísýn
Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg
Óvissa ríkir um framtíð suðurafríska flugfélagsins South African Airways þar sem taprekstur félagsins er orðin það mikill að aðgerðir til að snúa rekstri félagsins við eru orðnar erfiðar fyrir ríkisstjórn Suður-Afríku.
Félagið hefur ekki náð að skila inn hagnaði í sex ár í röð á sama tíma og rekstarumhverfið
er orðið mjög krefjandi ásamt aukinni samkeppni.
South African leitar nú að aðila til að grípa inn í og setja aukið fé í rekstur félagsins en félagið tapaði
í fyrra tæpum 47 milljörðum króna og þá hefur félaginu ekki tekist að finna samvinnuflugfélag sem hefur áhuga á að kaupa hlut í félaginu.
Stjórn South African að fara yfir eigur félagsins og skoða möguleika á að selja þær auk
fasteigna til að losa um laust rekstrarfé.
Þá á félagið í vandræðum með að setja saman ársskýrslu fyrir fjármálaárið 2017 sem er senn á enda
þar sem ekki hefur verið haldið nægilega vel utan um bókhald flugfélagsins.
Lengi hefur staðið til að snúa rekstri félagsins við en aldrei hefur verið farið eftir viðsnúningsáætluninni sem gerð var á sínum tíma.
Flugmálayfirvöld í Suður-Afríku hafa miklar áhyggjur af stöðu félagsins og segja að óvissa ríkir
um hvort að South African geti haldið áfram flugrekstri með sama áframhaldi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.