flugfréttir

Svona mun Boeing 797 líta út

12. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:38

Myndirnar eru „renderingar“ frá hönnuðum Boeing

Birtar hafa verið fyrstu myndirnar af Boeing 797 sem flugvélaframleiðandinn bandaríski stefnir á hefja framleiðslu á en um tölvugerðar þrívíddarmyndir er að ræða sem sýna fyrstu drög að lokaútliti frá flugvélahönnuðum.

Boeing 797 yrði fyrsta nýja farþegaþotan frá Boeing í 14 ár eða frá því framleiðandinn tilkynnti um Dreamliner-þotuna árið 2004 sem kom svo á markaðinn árið 2011.

Mjög líklegt er að hönnunin muni taka einhverju breytingum þar sem frekari endurbætur á útliti fara yfirleitt alltaf fram alveg fram að því að framleiðsla hefst.

Boeing 797 verður framtíðarþota og kemur fram að hún muni fljúga um háloftin næstu sex áratugina og brúa bilið frá Boeing 737 MAX 10 upp í minnstu Dreamliner-þotuna, Boeing 787-8.

Samt gæti verið allt að áratugur í að Boeing 797 komi á markaðinn en stefnan hefur verið sett á að afhendingar hefjist árið 2025 en það gæti þó dregist um nokkur ár.

Boeing hefur ekki formlega lýst því yfir að vélin muni heita „Boeing 797“ og hefur framleiðandinn notast við vinnsluheitið NMA sem stendur fyrir „New Middle-Market Airplane“ eða „New Midsize Aircraft“.

Tvær undirtegundir - NMA-6X og NMA-7X

Minni gerðin, NMA-6X, kemur fyrst á markaðinn árið 2025 en sú þota mun taka 225 farþega og hafa flugdrægi upp á 5.000 nm en stærri gerðin, NMA-7X, mun taka 265 farþega og hafa flugþol upp á 4.500 nm og koma á markaðinn árið 2027.

Af myndinum að dæma þá minnir Boeing 797 óneitanlega á Boeing 757 og kemur hún með svipuðum stélhluta og Boeing 737 MAX, stórum gluggum líkt og Dreamliner og framhluta og glugga í stjórnklefa í líkingu við Boeing 757 og Boeing 767.

blablablabla - myndatexti

Boeing hefur verið í viðræðum við 50 viðskiptavini og safnað saman ábendingum og reynt að mæta öllum á miðri leið til að smíða „skothelda“ farþegaþotu sem hentar sem flestum.

„Það hefur engin ákvörðun verið tekin ennþá en stjórn Boeing mun gera upp hug sinn varðandi þotuna þegar allt er tilbúið og þeir hafa um eitt ár til að segja af eða á varðandi smíði þotunnar“, segir Bernard Choi, talsmaður Boeing.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga