flugfréttir
ATR-flugfloti SAS flaug ekki í heilan dag vegna ísingar
ATR 72-600 flugvél SAS
Fimm flugvélar af gerðinni ATR 72-600 í flota SAS voru kyrrsettar tímabundið sl. helgi og gátu ekki flogið áætlunarflug allan laugardaginn vegna ísingar.
Vetrarhörkur og miklir kuldar í Skandinavíu sl. vikur hafa gert flugfélögum á Norðurlöndum erfitt
fyrir en ATR vélarnar fimm, sem eru starfræktar af breska flugfélaginu Flybe, sátu á jörðinni allan laugardaginn
vegna „óeðlilegs veðurs“.
SAS tilkynnti á laugardag að öllu flugi til og frá Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi með ATR skrúfuvélunum
hefði verið aflýst vegna frostrigningar en það hafði áhrif á flug til Visby og til Turku í Finnlandi.
Flybe sagðist ekki getað útskýrt hversvegna ATR vélarnar gætu ekki flogið þennan daginn á meðan
allar aðrar flugvélar voru á áætlun.
SAS útskýrði hinsvegar í tilkynningu að flugvélar hefðu mismunandi eiginleika
og takmörk er kæmur að veðri og hefðu veðurskilyrðin þennan daginn farið yfir þau mörk
sem flugfélagið setur er kemur að flugrekstri fyrir ATR flugvélarnar.
ATR flugvélarnar hafa hinsvegar verið þekkar fyrir að vera viðkvæmari fyrir ísingu samanborið
við aðrar flugvélategundir þar sem ísing getur myndast á þeim á mjög skömmum tíma við slíkar
aðstæður.
Flybe hefur fimm ATR 72-600 flugvélar sem allar eru starfræktar fyrir hönd SAS.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.