flugfréttir

Tíuþúsundasta Boeing 737 þotan frá upphafi hefur verið smíðuð

13. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:15

Starfsmenn Boeing draga tíuþúsundustu Boeing 737 þotuna út úr skýli í Renton

Boeing hefur lokið við samsetningu á tíuþúsundustu Boeing 737 þotunni sem smíðuð hefur verið frá upphafi og var vélinni ýtt út úr framleiðslusalnum í Renton á dögunum.

Greint var frá því um miðjan febrúar er tíuþúsundasti Boeing 737 skrokkurinn var ferjaður frá Spirit AeroSystems í Kansas til Seattle þann 14. febrúar.

Þotan, sem var einungis skrokkur fyrir nokkrum dögum síðan, er af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og verður vélin afhent til Southwest Airlines á næstunni.

Boeing 737 hefur gengið í gegnum fjórar kynslóðir frá því hún kom á markaðinn árið 1968 en fyrst komu upprunalegu vélarnar sem voru af gerðinni Boeing 737-100 og -200.

„Classic“ þoturnar voru af gerðinni Boeing 737-300, -400, -500, -600, -700, -800 og -900 og voru þær smíðaðar frá árinu 1984 til ársins 2000.

Tíuþúsundasta Boeing 737 þotan fer til Southwest Airlines

Því næst var „Next-Generation“ kynnt til leiks árið 1993 sem var endurhönnun af Boeing 737-600, -700, -800 og -900 en vinsælasta Boeing 737 þotan af öllum er Boeing 737-800NG.

Loksins kom síðan nýjasta kynslóðin, Boeing 737 MAX, sem kynnt var árið 2011 en framleiðslan á þeim þotum hófst árið 2014.

Bæði Boeing og Spirit AeroSystems hafa fagnað tíuþúsundustu Boeing 737 þotunni ásamt starfsmönnum fyrirtækjanna en skrokkur vélarinnar kemur með sérstöku merki sem segir „10.000 deliveries“.

Fleiri myndir:







Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga