flugfréttir
Bjarni geimfari með fyrirlestur í HR á morgun
- Mun segja frá ævintýrum sínum, geimferðum, vísindum og flugi
Bjarni V. Tryggvason mun halda fyrirlestur á morgun klukkan 12:00 í Háskólanum í Reykjavík (Stofa V101)
Bjarni V. Tryggvason, verkfræðingur og fyrsti Íslendingurinn til að fara út í geiminn, mun halda fyrirlestur á morgun í Háskóla Reykjavíkur.
Yfirskrift fyrirlestursins er „Ævintýri lífs míns: Verkfræði
og flug“ og mun Bjarni spjalla um geimflug, flugvélaprófanir
og rannsóknir og þróun á sviði verkfræði auk þess
sem hann mun stikla á stóru um þau ævintýri sem á daga
hans hefur drifið.
Bjarni fæddist á Íslandi árið 1945 en fluttist árið 1953 til Kanada þar sem hann hefur búið
síðan. Hann hefur dvalið á Íslandi undanfarnar vikur og unnið með ISAVIA að þróun á flugvélaprófunum á Keflavíkurflugvelli.
Bjarni var fyrsti Íslendingurinn til þess að fara út í geim
Bjarni er með B.Ap. Sc gráðu í verkfræði og eðlisfræði frá Háskólanum í British Columbia og heiðursdoktorsgráðu frá fjölmörgum háskólum en árið 1997 flaug
hann í 10 daga með bandarísku geimskutlunni og árin 1998-2000 lauk hann þjálfun hjá NASA og alþjóðlegu geimstöðinni.
Hann hefur þróað hugbúnað sem notaður hefur verið í rússnesku MIR geimstöðinni, bandarísku geimskutlunni og alþjóðlegum geimstöðinni (ISS) og þá
hefur hann hefur gegnt stöðum og kennt loftaflsfræði, stærðfræði og hönnun kerfa fyrir geimferðir í fjölmörgum háskólum.
Bjarni hefur mikla reynslu sem flugmaður, m.a. sem listflugmaður og á yfir 6300 flugtíma að baki á yfir 50 flugvélategundum. Frá 2009-2017 kenndi hann við alþjóðlegan kanadískan flugskóla fyrir prófunarflugmenn (ITPS Canada).
Fyrirlesturinn mun hefjast á morgun (14. mars) klukkan 12:00 í stofu V101 í Háksólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og eru allir velkomnir.
Fleiri myndir af Bjarna:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.