flugfréttir
Fyrsta tilraunaflugið með stærsta þotuhreyfil heims
- Flugprófanir eru hafnar með GE9X hreyfilinn fyrir Boeing 777X
Boeing 747-400 tilraunarþota GE Aviation með GE9X hreyfilinn í flugtaki á flugvellinum í Victorville þann 13. mars
Fyrsta flugið með nýja GE9X hreyfilinn frá GE Aviation var flogið sl. þriðjudag en hreyfillinn er sá sem mun koma til með að knýja áfram Boeing 777X þotuna sem mun fljúga jómfrúarflugið á næsta ári.
GE9X er stærsti þotuhreyfill sem framleiddur hefur verið í heiminum en innra þvermál
hreyfilsins eru 3.5 metrar.
Hreyfillinn mun skila af sér kný upp á 105.000 lbs sem er aðeins minna
en GE90 hreyfillinn á Boeing 777-300ER þotunum, sem hefur afköst upp á 115.000 lbs, en á móti
kemur að GE9X verður 10 sentimetrum breiðari.
Það mun gera GE9X allt að 10% hagkvæmari hreyfil samanborið við GE90 þar sem hann
verður mun sparneytnari.
Fyrsta flugið með hreyfilinn fór fram með tilraunaþotu GE Aviation af gerðinni Boeing 747-400 og var flogið
frá Victorville flugvellinum í Kaliforníu en flugprófanirnar munu standa yfir í nokkra mánuði.
Boeing 777X, sem kemur í tveimur útgáfum, Boeing 777-8 og Boeing 777-9, eiga að koma
á markaðinn árið 2020 og 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.