flugfréttir
Ryanair mun hefja flug til Tyrklands
Boeing 737-800 þota Ryanair
Ryanair hefur ákveðið að hefja flug til Tyrklands en þetta er í fyrsta sinn sem lágfargjaldafélagið írska mun fljúga til landsins.
Með þessu mun félagið færa út kvíarnar enn frekar til landa í Miðausturlöndum og nágrenni
en Ryanair flýgur nú þegar til Tel Aviv og á næstunni mun félagið hefja flug til Jórdaníu.
Ryanair ætlar að fljúga til til Dalaman bæði frá Dublin og frá Bratislava og verður
fyrsta flugið til Tyrklands flogið í júní.
Ferðamönnum til Tyrklands hefur farið fjölgandi á nýjan leik og til að mynda hefur TUI ferðaskrifstofan
og Thomas Cook sagt að töluverð aukning hafi orðið á þeim farþegum sem ferðast til Tyrklands.
Ryanair flýgur í dag til 205 áfangastaða í 33 löndum í Evrópu að Ísrael og Morokkó undanskildum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.