flugfréttir

Minnsta 737 MAX þotan flýgur sitt fyrsta flug

- Boeing 737 MAX 7 kemur á markaðinn í janúar 2019

18. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:33

Boeing 737 MAX 7 í jómfrúarfluginu þann 16. mars sl.

Flugprófanir eru hafnar með fyrstu Boeing 737 MAX 7 þotuna sem flaug sl. föstudag sitt fyrsta flug en vélin er minnsta útgáfan af 737 MAX þotunum sem hefur einnig lengsta flugdrægið af þeim öllum.

Jómfrúarflugið stóð yfir í þrjár klukkustundir og voru margar tegundir af prófunum gerðar á meðan og þar á meðal lágt aðflug, prófanir á kerfum og endurræsing hreyfla á flugi.

Boeing áætlar að afhenda fyrsta eintakið af 737 MAX 7 á næsta ári til Southwest Airlines sem hefur yfir 513 eintök af Boeing 737-700 í flota sínum.

Af þeim 4.307 Boeing 737 MAX þotum sem pantaðar hafa verið þá hafa sex viðskiptavinir pantað til samans 58 eintök af Boeing 737 MAX 7 sem jafngildir 1,3% af heildarfjölda þeirra Boeing 737 MAX þotna sem pantaðar hafa verið.

Jeff Haber hjá Boeing bendir á að þrátt fyrir fáar pantanir þá séu um 2.500 þotur af gerðinni Boeing 737-700 í umferð um allan heim sem á eftir að skipta út fyrir nýjum vélum og sé Boeing 737 MAX 7 arftaki hennar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga