flugfréttir

Stefna á að ljúka við samning um yfirtöku á CSeries fyrir sumarið

- Airbus gæti þá selt CSeries-þotuna á Farnborough-sýningunni í sumar

19. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:09

Það var í október í fyrra sem að Airbus og Bombardier tilkynntu um samning um að Airbus myndi taka yfir meirihluta framleiðslunnar á CSeries-þotunni

Sagt er að Airbus muni ljúka við samning við Bombardier um yfirtöku á hluta af framleiðslunni á CSeries-þotunum fyrir sumarið og mögulega áður en Farnborough flugsýningin hefst í Bretlandi í júlí.

Þetta er haft eftir aðilum sem eru kunnugir stöðu mála varðandi yfirtökuna en með þessu gæti Airbus boðið flugfélögum á Farnborough flugsýningunni upp á CSeries-þotan sem væri þá formlega komin í vöruúrval framleiðandans.

Það var í október í fyrra sem að Airbus og Bombardier tilkynntu um samning um að Airbus myndi taka yfir meirihluta framleiðslunnar sem var gert í kjölfar ásakanna frá Boeing um að Bombardier væri að þiggja styrki frá kanadíska ríkinu sem síðar varð til þess að 292% innflutningstollar voru kynntir til sögunnar.

Airbus ákvað einnig að vera skrefi á undan Boeing með því að tryggja sér hlut í CSeries-þotunni vegna sögusagna sem hafa gengið um að Boeing ætli sér að kaupa hlut í brasilíska flugvélaframleiðandanum, Embraer.

Með samningnum getur Bombardier selt CSeries-þoturnar til Bandaríkjanna í gegnum Airbus og farið með þessari leið framhjá innflutningstollunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga