flugfréttir

Ryanair mun eignast 75 prósenta hlut í Laudamotion

- O´Leary hefur gert samning við Niki Lauda, stofnanda flugfélagsins Niki

20. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:14

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segist hlakka til þess að vinna með Niki Lauda að þróun flugfélagsins Laudamotion

Ryanair hefur greint frá því að félagið hafi náð samningi við Niki Lauda um kaup á 75 prósenta hlut í hinu nýja flugfélagi Laudamotion sem stofnað var eftir að Lauda náði að kaupa til baka flugfélagið Niki, félag sem hann stofnaði árið 2003, og var í eigu Air Berlin.

Niki mun á næstunni hefja áætlunarflug undir nýju nafni eftir að stofnandinn keypti næstum allar eigur félagsins til baka úr þrotabúi Air Berlin sem tók yfir rekstri flugfélagsins árið 2011.

Í yfirlýsingu frá Ryanair kemur fram að til standi að kaupa 24% hlut í Laudamotion til að byrja með en því næst verður hluturinn stækkaður upp í 75 prósent eins fljótt og mögulegt er en samkeppnisstofnun Evrópusambandsins á þó eftir að gefa grænt ljós fyrir kaupunum.

Niki Lauda mun sitja í stjórn Laudamotion og sjá til þess að rekstur félagsins verði á þann veg að hægt verði með árangursríkum hætti að gera Laudamotion að leiðandi lágfargjaldaflugfélag í Austurríki.

Ryanair mun setja fé í reksturinn og veita stjórnendum rekstraraðstoð og færa félaginu sex farþegaþotur til viðbótar en með því mun flotinn stækka upp í 21 þotu.

Kaupverðið á 75% hlut í Laudamotion verður um 6,1 milljarður og er stefnt á að félagið muni skila inn hagnaði á þriðja rekstrarári með flugflota upp á 30 þotur.

Fyrsta áætlunarflug Laudamotion er áætlað þann 25. mars og verður fyrsta flugið flogið frá Dusseldorf, Frankfurt og Stuttgart til Mallorca en félagið mun í sumar fljúga til sextán áfangastaða við Miðjarðarhafið frá Þýskalandi, Sviss og Austurríki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga