flugfréttir
Airbus íhugar að smíða A330neo fraktþotu
Airbus A330neo þotan
Airbus skoðar nú möguleika á því að gera fraktútgáfu af Airbus A330neo þotunni og er verið að athuga hvort að vöruflutningarisinnn United Parcel Service (UPS) hafi áhuga á slíkri þotu eða Amazon.com.
Ef Airbus framleiðir fraktútgáfu af vélinni þá myndi það glæða nýju lífi í sölur á Airbus A330neo
sem hefur ekki selst í eins mörgum eintökum og vonir voru bundnar við.
Alls hafa þrettán viðskiptavinir lagt inn pantanir í 214 eintök af Airbus A330neo þotunni
en til samanburðar þá hafa verið pöntuð yfir 850 eintök af Airbus A350.
Bæði Amazon.com og UPS hafa farið þess á leið við Airbus að A330-900 þotan verði gerð að fraktþotu og
hún lengd svo hægt væri að koma meiri frakt fyrir um borð.
Nú þegar hefur Airbus fengið pantanir í 42 fraktþotur af gerðinni Airbus A330F þotunni en fjórar
hafa verið afhentar.
Erfiðlega hefur samt gengið bæði fyrir Boeing og Airbus að selja nýjar fraktþotur þar sem mikil
eftirspurn er eftir breyttum þotum af gerðinni Boeing 767 þotum og A330 sem áður voru farþegaflugvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.