flugfréttir

Nýtt kanadískt flugfélag mun ekki hefja starfsemi sína í sumar

- Ætlaði að verða fyrsta ódýra lágfargjaldafélagið í Kanada

21. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:31

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 7 í litum Jetlines

Nýtt kanadískt lágfargjaldafélag sem ætlaði sér að hefja starfsemi sína í sumar hefur frestað áætlun sinni um að koma á markaðinn í júní.

Flugfélagið Jetlines var stofnað árið 2013 en erfiðlega hefur gengið fyrir félagið að koma sér á fót þar sem mikil seinkun hefur verið á frágangi á leyfum frá kanadískum flugmálayfirvöldum auk þess sem brösulega hefur gengið að ganga frá leigu á þotum í flotann.

Aðalvandamálið liggur í fjármögnun á flugvélaleigu en í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að stjórn Jetlines sé í samningaviðræðum við helstu flugvélaframleiðendur heims um kaup og kjör.

Á meðan mun félagið halda áfram að einblína á ráðningar á starfsfólki, ná samningum um lendingarleyfi á flugvöllum og að fjármagna næstu skref.

Jetlines var búið að tryggja sér tvær Boeing 737-800 þotur frá einni flugvélaleigu en nú hefur komið í ljós að þær þotur eru ekki tiltækar.

Félagið hefur pantað fimm nýjar farþegaþotur frá Boeing af gerðinni Boeing 737 MAX 7 en þær verða ekki afhentar fyrr en árið 2023.

Jetlines hefur ætlað sér að verða fyrsta ódýra kanadíska en þetta mun veita öðru kanadísku flugfélagi, sem kallast Swoop, forskot á markaðinn.

Swoop er nýtt dótturfélag WestJet sem hefur lent í deilum við flugmenn sína sem hafa verið alfarið á móti stofnun hiðs nýja lágfargjaldafélags en WestJet er staðráðið í að láta Swoop fljúga fyrsta flugið þann 25. júní næstkomandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga