flugfréttir

Singapore-flugvöllur valinn sá besti í heimi sjötta árið í röð

22. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:52

Edward Plaisted, framkvæmdarstjóri Skytrax, (til vinstri) afhendir Lee Seow Hiang, framkvæmdarstjóra Changi-flugvallarins í Singapore, verðlaunin

Changi-flugvöllurinn í Singapore hefur verið valinn besti flugvöllur í heimi, sjötta árið í röð, af fyrirtækinu Skytrax en verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í gær á Passenger Terminal Expo 2018 hátíðinni sem fram fór í Svíþjóð.

Þetta er í fyrsta sinn sem flugvöllur nær að vera valinn besti flugvöllur heims í sex ár samfleytt að mati Skytrax en flugvöllurinn í Hong Kong hlaut þessi verðlaun 5 ár í röð frá árinu 2001 til ársins 2005.

Þá fékk Changi-flugvöllurinn einnig verðlaun fyrir bestu aðstöðuna fyrir farþega á flugvellinum og verðlaun sem besti flugvöllurinn í Asíu.

Mat Skytrax byggist á tilnefningum frá 13,7 milljónum farþega sem hafa ferðast um 500 flugvelli í yfir eitt hundrað löndum í heiminum.

Fjórir flugvellir í Asíu eru á Topp 10 listanum yfir þá bestu í heimi en Incheon-flugvöllurinn í Seoul kom í 2. sæti og Haneda-flugvöllurinn í Tókýó var valinn þriðji besti flugvöllur heims.

Hér kemur listinn í heild sinni:

1. - Singapore Changi Airport - (SIN)

2. - Seoul Incheon International Airport - (ICN)

3. - Toykyo Haneda International Airport - (HND)

4. - Hong Kong Chek Lap Kok International Airport - (HGK)

5. - Doha Hamad International Airport - Doha (DOH)

6. - Munich Airport - (MUC)

7. - Nagoya Central Japan International Airport - (NGO)

8. - London Heathrow Airport - (LHR)

9. - Zurich Airport - (ZRH)

10. - Frankfurt Airport - (FRA)







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga