flugfréttir

Fimmtán Boeing 737 þotur skemmdust í hagléli í Argentínu

- Felldu niður innanlandsflug og hættu farmiðasölu tímabundið

23. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:16

Ljósmynd sem náðist af eldingu sem laust niður í nágrenni flugvallarins í Argentínu

Argentínska flugfélagið Aerolineas Argentinas hefur kyrrsett fimmtán Boeing 737 þotur eftir að þær urðu fyrir skemmdum í kjölfar hagléls sem gekk yfir Aeroparque Jorge Newbery flugvöllinn í Buenos Aires á dögunum.

Veðrið gekk yfir borgina þann 14. mars og hefur félagið aflýst fjölda innanlandsflugferða fram til 25. mars sem hefur áhrif á 3.600 farþega en félagið hefur einnig lokað fyrir farmiðasölu á öllu innanlandsflugi.

Af þeim 81 flugvél sem voru á flugvellinum í Buenos Aires er veðrið gekk yfir þá urðu þrettán flugvélar fyrir miklum skemmdum vegna haglélsins en starfsemi félagsins lamaðist að hluta til þar sem um er að ræða fjórðung alls flugflotans og hefur félagið ekki aðrar vélar tiltækar.

Ein af þeim Boeing 737 þotum sem urðu fyrir skemmdum skoðuð í flugskýli í Buenos Aires

Flugvirkjar hjá Aerolineas Argentinas hafa verið á fullu að skoða og meta skemmdirnar en nokkrar vélar, sem urðu fyrir minniháttar skemmdum, hafa gengist undir viðgerð en sérfræðingar frá Boeing eru komnir til Argentínu til að skrifa vélarnar út svo þær geti farið aftur í umferð.

Meðal þeirra véla sem skemmdust voru Boeing 737 MAX þotur sem félagið fékk nýlega afhentar en fyrsta 737 MAX þotan var afhent félaginu í nóvember í fyrra.

Aerolineas Argentinas áætlar að flug verði orðið með eðlilegum hætti um helgina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga