flugfréttir

TF-ICY komin í liti Icelandair

- Newark verður fyrsti 737 MAX áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku

23. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:46

TF-ICY, önnur Boeing 737 MAX þota Icelandair, verður afhent á næstunni til félagsins

Önnur Boeing 737 MAX þota Icelandair, sem ber skráninguna TF-ICY, er nú að verða tilbúin til afhendingar en flugvélin var máluð á dögunum í litum félagsins.

Fyrsta Boeing 737 MAX þota Icelandair, TF-ICE, kom til landsins fyrir þremur vikum síðan og er sú þota að gangast undir undirbúningsvinnu í Keflavík fyrir jómfrúarflugið til Berlínar þann 6. apríl.

New York verður svo fyrsti áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku með Boeing 737 MAX en þann 10. apríl mun félagið fljúga með Boeing 737 MAX til Newark-flugvallarins í New Jersey og verður flogið til Newark með 737 MAX fram til 1. maí næstkomandi.

TF-ICU verður þriðja Boeing 737 MAX þota Icelandair

Þriðja Boeing 737 MAX þota Icelandair er einnig komin út úr lokasamsetningu en sú þota kemur með skráningunni TF-ICU og er verið að undirbúa þá þotu fyrir fyrsta tilraunaflugið.

Meðal annarra áfangastaða sem Icelandair stefnir á að fljúga til í Evrópu með Boeing 737 MAX á þessu ári er Amsterdam, Bergen, Dublin, Hamborg, London Gatwick, London Heathrow, Osló, París Orly, Stokkhólmur, Berlín Tegel og Billund.

Fyrstu áfangastaðirnir sem fyrirhugaðir eru í Norður-Ameríku með Boeing 737 MAX eru Cleveland, Halifax, Montréal og Philadelphia.

TF-ICY á flugvellinum í Renton







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga