flugfréttir
Fyrsta Boeing 777-9 þotan komin í samsetningu í Everett
Framhlutinn af fyrstu Boeing 777-9 þotunni komin í rými 40-27 í verksmiðjum Boeing í Everett
Boeing er byrjað að smíða fyrsta eintakið af Boeing 777X þotunni sem er arftaki Boeing 777 sem kom á markaðinn árið 1995.
Einingarnar fyrir fyrstu Boeing 777-9 þotuna eru komnar í samsetningarsal Boeing í Evrerett, nánartiltekið
í rými númer 40-27, en og er um að ræða nefhluta og stjórnklefann fyrir fyrstu tilraunaþotuna.
Notast verður við nýja tækni í samsetningunni sem Boeing tók í notkun fyrir tveimur árum síðan þar sem vélmenni
og tölvustýrðir armar munu sjá um stórann hluta af þeirri vinnu sem fer fram við að koma hnoðum fyrir í skrokk
vélarinnar.
Síðar á þessu ári mun þotan fara inn í lokasamsetningu þar sem vængir vélarinnar verða festir við skrokkinn
auk þess sem rafkerfi, leiðslum og búnaði verður komið fyrir auk nýju GE9X hreyflanna.
Fyrstu flugprófanir með Boeing 777-9 munu hefjast árið 2019 og verður fyrsta þotan afhent til Emirates
árið 2020 en fyrsta Boeing 777-8, minni tegundin, kemur á markaðinn árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.