flugfréttir

Lenti í London eftir 17 tíma næturflug frá Perth

- Fyrsta beina áætlunarflugið milli Ástralíu og Bretlands

25. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:40

Flugtíminn milli Ástralíu og Bretlands eru nú þremur tímum styttri þar sem önnur flug þurfa að millilenda í Asíu til að taka eldsneyti

Blað var brotið í gær í flugsögu Breta og Ástrala og flugfélagsins Qantas er flugfélagið ástralska flaug í fyrsta sinn beint frá Perth til London Heathrow.

Þetta er lengsta áætlunarflug heims í dag en flugið var flogið með Dreamliner-þotu af gerðinni Boeing 787-9 og lagði flugvélin að baki 14.498 kílómetra og tók flugið 17 klukkustundir og þrjár mínútur.

Þetta slær núverandi met sem Qatar Airways átti og er flugið milli Doha og Auckland á Nýja-Sjálandi því komið í 2. sætið yfir lengsta flug heims en það flug eru 14.200 kílómetrar með flugtíma upp á 16 klukkustundir.

Flug QF9 lenti á London Heathrow klukkan 4 í nótt

Flugið slær þó ekki út lengsta áætlunarflug sögunnar sem er met sem Singapore Airlines átti er félagið flaug beint flug frá Singapore til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum en það flug tók yfir 18 klukkustundir en því flugi var hætt árið 2013.

Flug QF9 fór í loftið frá flugvellinum í Perth klukkan 10:44 í gær (laugardag) að íslenskum tíma (19:04 að vestur-áströlskum tíma) og var lent á Heathrow-flugvellinum í London í morgun klukkan 04:08.

Flug QF9 lenti á London Heathrow klukkan 4 í nótt

Um helmingur leiðarinnar lá yfir sjó þar sem vélin var í tæpa 10 klukkustundir að fljúga yfir Indlandshaf þar til hún kom að ströndum Oman eftir að hafa flogið meðfram syðsta odda Indlands en því næst lá leiðin yfir Íran, Tyrkland og þvert yfir Evrópu.

Tók 4 daga árið 1947 en tekur í dag 17 klukkustundir

Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, var um borð í jómfrúarfluginu en hann sagði við blaðamenn að um byltingu í flugsamgöngum væri að ræða og minnti hann á að árið 1947 þá hafi það tekið 4 daga fyrir fólk að fljúga frá Ástralíu til Bretlands.

Fjórir flugmenn voru um borð í vélinni sem skiptust á að fljúga en fyrst ber að nefna Lisa Norman, flugstjóra, Jeff Foote flugstjóra, fyrsta flugmann Dave Summergreene og annan flugmann (second officer), Troy Lane.

Lisa Norman og áhöfnin í fyrsta fluginu frá Perth til London

Lisa Norman hefur flogið fyrir Qantas í 29 ár og er hún einnig þjálfunarflugstjóri hjá Qantas en hún hefur þjálfað flugmenn í gegnum árin á Boeing 767, Boeing 747, Airbus A330 og núna á Dreamliner-þoturnar.

Um borð í fyrsta fluginu milli Perth og London Heathrow voru 236 farþegar en á sama tíma tók Qantas í notkun nýja biðstofu á flugvellinum í Perth.

Dreamliner-þotan í flugtaki á flugvellinum í Perth

Flug Qantas milli Perth og London er í dag fljótlegasta leiðin til að komast til Ástralíu en önnur flug, sem fljúga frá Sydney og Melbourne, þurfa að hafa viðkomu í Asíu eða Miðausturlöndum til að taka eldsneyti sem lengir flugtímann um 3 klukkustundir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga