flugfréttir
American slítur viðræðum við Airbus um A330neo
- Munu líklega panta Dreamliner í staðinn
Salan á Airbus A330neo hefur gengið erfiðlega og hefur Airbus misst allar pantanirnar í minni tegundina, Airbus A330-800neo
Airbus hefur tapað samningaviðræðum við American Airlines um sölu á Airbus A330neo þotum til flugfélagsins.
Airbus hefur átt í viðræður við American Airlines um sölu á A330neo en félagið „arfleiddi“ pöntun í þotur
af gerðinni Airbus A350 við yfirtökuna á US Airways árið 2013 en American hefur um nokkurt skeið
viljað endurskoða þá pöntun.
Airbus hefur verið að bjóða American Airlines A330-900neo þotuna en American Airlines hefur einnig
verið að skoða möguleika á að taka fleiri Dreamliner-þotur í staðinn fyrir Airbus A350.
Airbus tilkynnti á föstudag að viðræðum við American Airlines hafi verið slitið og eru miklar líkur á því
að flugfélagið bandaríska ætli að panta 22 eintök af Boeing 787-9 í staðinn fyrir þær tuttugu og tvær Airbus A350-900
þotur sem US Airways pantaði á sínum tíma.
Erfiðlega hefur gengið fyrir Airbus að selja Airbus A330neo þotuna þar sem samkeppnin við Boeing um Boeing 787
er mjög mikil.
Í seinasta mánuði missti Airbus pöntun frá Hawaiian Airlines sem ætlaði sér að panta Airbus A330neo en félagið
hætti við pöntunina og lagði inn pöntun í tíu Boeing 787-10 þotur.
Um var að ræða síðustu pöntunina sem Airbus hafði í minni gerðina, Airbus A330-800, og er ekkert félag
í dag sem á von á þeirri þotu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.