flugfréttir
Sjálfkeyrandi ökutæki prófað á Heathrow-flugvelli
CargoPod ökutækið á Heathrow-flugvellinum
IAG Cargo, dótturfélag IAG (International Airlines Group), hefur framkvæmt prófanir með sjálfkeyrandi ökutæki á Heathrow-flugvellinum í London sem gæti mögulega ekið sjálft á milli stæða með smávörur og varning milli starfsmanna á vellinum.
Ökutækið, sem nefnist „CargoPod“, var smíðað af fyrirtækinu Oxbotica í Oxford á Englandi og hafa tilraunir
með ökutækið staðið yfir í tæpar fjórar vikur þar sem það hefur ekið sjálft eftir flughlöðum á Heathrow.
Megintilgangur tilraunarinnar er að sjá hvernig hægt væri að notast við sjálfkeyrandi ökutæki
á flugvallarumhverfinu.
Búið er að safna saman upplýsingum um sjálfkeyrandi aksturs ökutækisins upp á 200 kílómetra sem
IAG og Heathrow Airports mun nota til að meta þá möguleika sem eru í boði við notkun á ökutækinu.
Með CargoPod-bílnum er hægt að koma ýmsum smávarningi og skjölum milli staða frá flugvélastæði innan
Heathrow-flugvallarins með skjótum og öruggum hætti.
CargoPod gengur fyrir rafmagni og notast við lasergeisla og skynjarabúnað til að fara á milli staða en
Oxbotica hefur þróað þessa tækni um nokkurt skeið og er einnig verið að þróa hugbúnað
fyrir sjálfkeyrandi bíla innan borgarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.