flugfréttir
Boeing afhendir lengstu Dreamliner-þotuna
- Fyrsta Boeing 787-10 afhent til Singapore Airlines
Afhendingarathöfnin fór fram utandyra í gærkvöldi við verksmiðjur Boeing í North Charleston í Suður-Karólínu
Boeing hefur afhent fyrsta eintakið af Boeing 787-10 sem er lengsta Dreamliner-þotan en það er Singapore Airlines sem tók við vélinni við hátíðlega athöfn sem fram fór í gærkvöldi í verksmiðjum Boeing í Suður-Karólínu.
Boeing 787-10 er framleidd í verksmiðjunum í North Charleston en þotan er þriðja tegundin
af Dreamliner-þotunum og sú síðasta sem átti eftir að afhenda en fyrsta Boeing 787-8 þotan var afhent til ANA (All Nippon Airways)
árið 2011 og fyrsta Boeing 787-9 var afhent einnig til ANA í október 2014.
„Það er heiður fyrir okkur að vera fyrsta flugfélagið í heimi til þess að fá afhenta þessa stórkostlegu flugvél“,
sagði Goh Choon Phong, framkvæmdarstjóri Singapore Airlines, í gær.
Boeing 787-10 er lengsta Dreamliner-þotan og þriðja og sú síðasta sem
kemur á markaðinn
Boeing 787-10 þota Singapore Airlines tekur 337 farþega en félagið hefur pantað 49 eintök af þessari
flugvélategund.
Singapore Airlines mun hefja farþegaflug með þotunni nýju í maí og verður hún notuð til að byrja
með í flugi frá Singapore til Osaka í Japan og til Perth í Ástralíu.
Í dag hafa sjö viðskiptavinir pantað 171 þotu af gerðinni Boeing 787-10 en þeir eru Air France-KLM, Air Lease
Corporation, ANA (All Nippon Airways), British Airways, Etihad Airways, EVA Air, GECAS, Singapore
Airlines, United Airlines og einn óþekktur viðskiptavinur.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.