flugfréttir
Boeing 737 var tæp á eldsneyti vegna storms á Kanarí
Boeing 737-700 þota Jet Time
Flugmálayfirvöld hafa nú til rannsóknar atvik sem átti sér stað er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-700 frá danska flugfélaginu Jet Time var orðin tæp á eldsneyti er hún flaug til Kanaríeyja í febrúar.
Þotan fór í loftið frá flugvellinum í Álaborg á Jótlandi til syrði flugvallarins á eyjunni Tenerife þann
25. febrúar sl. en í 24.000 fetum í aðfluginu að Tenerife þurfti flugvélin að fara í biðflug.
Ástæðan var vegna slæmra lendingarskilyrða í kjölfar storms sem gekk yfir Kanarí-eyjar með mikilli
úrkomu, slæmu skyggni og vindhviðum upp á 43 hnúta.
Veðurskilyrði urðu enn verri og var skyggnið orðið það lítið að það var komið undir lágmarkið fyrir
aðflug að flugvellinum og þurftu flugmenn að fara að huga að öðrum úrræðum í samráði við
flugumferðarstjóra.
Pálmatré á Kanaríeyjum í veðursofsanum sem gekk yfir þann
25. febrúar
Eftir nokkrar lendingartilraunir var ákveðið að halda til Las Palmas á Gran Canaria en í aðfluginu
að þeim flugvelli gaf flugumgerðarstjóri fyrirmæli um að fara í biðflug í um 25 mínútur vegna umferðar.
Skömmu síðar lýstu flugmennirnir yfir neyðarástandi með kallinu „Mayday“ þar sem í ljós kom
að þeir sáu fram á að lenda með minna varaeldsneyti en reglugerðir segja til um.
Flugvélin fékk forgang til þess að lenda og lenti skömmu síðar í Las Palmas og kom í ljós
að eldsneytið um borð var komið undir lágmark en flugmálayfirvöld á Spáni hafa hafið rannsókn
á málinu.
Flugvélin tók eldsneyti í Las Palmas og hóf sig á loft 1:40 klst síðar og lenti á Tenerife South flugvellinum
með seinkun upp á þrjár klukkustundir.
Nokkrar flugvélar, sem voru einnig á leið til Kanarí þennan dag frá Evrópu, voru látnar lenda
í Barcelona vegna stormsins sem gekk yfir eyjarnar en fram kemur að þotan frá Jet Time hafi ekki verið sú eina sem var orðin tæp á eldsneyti.
Þá var 34 flugferðum aflýst frá flugvöllunum á Tenerife, Lanzarote og La Palma vegna óveðurs þenna daginn og þurftu nokkrar þotur að lenda í Marrakesh í Morokkó og í Fargo á Portúgal.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.