flugfréttir
Sjö Sukhoi-þotur hjá Aeroflot sýndu óáreiðanlegan flughraða
- Atvikin áttu sér stað á tveggja daga tímabili í Moskvu í febrúar
Sukhoi Superjet 100 þotur Aeroflot í Moskvu
Rannsóknarnefnd flugslysa í Rússlandi hafa gefið upp frekari upplýsingar á nokkrum atvikum sem upp komu varðandi óáreiðanlegan flughraða um borð í sjö rússneskum farþegaþotum sem allar þurftu að snúa við eða hætta við flugtak.
Í öllum atvikunum átti í hlut Sukhoi Superjet 100 þotur í flota Aeroflot á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu frá 4. til 5. febrúar
en í þremur tilfellum þurftu Sukhoi-þoturnar að hætta við flugtak þar sem mælar gáfu upp mismunandi
flugtakshraða er þær voru að fara hefja sig á loft til Volgograd, Minsk og Anapa.
Tvær aðrar Sukhoi Superjet 100 þotur voru komnar á loft og voru í flugtaksklifri á leið til
borganna Arkhangelsk og Platov þegar flughraðamælar sýndu sitt hvorn hraðann.
Í flugvélinni sem var á leið til Platvo áttu flugmennirnir einnig í vandræðum með
sjálfstýringuna og „autothrottle“ en báðar vélarnar snéru aftur við til Sheremetyevo-flugvallarins.
Hin atvikin tvö áttu sér stað í hærri flughæð en önnur Sukhoi Superjet 100 þotan var á leið til
Dresden í 7.000 fetum þegar upp kom óáreiðanlegur flughraði og í hinu tilfelli var SSJ100 þota á leið
til Chelyabinsk þegar vandamál kom upp með flughraða í 33.ooo feta hæð. Þær vélar
snéru einnig við til Moskvu.
Ein af Sukhoi Superjet 100 þotum Aeroflot á Sheremetyevo-flugvellinum
Sukhoi-flugvélaframleiðandinn hefur bent á Sheremetyevo-flugvöllinn og segir að slæmt veður hafi verið
á flugvellinum og ísingarskilyrði og hafi Sukhoi Superjet 100 flugvélar Aeroflot ekki verið einu flugvélategundirnar
sem lentu í vandræðum þessa daga.
Rannsóknaraðilar segja að einnig hafi komið upp vandamál með sýndan flughraða um borð í
Airbus A320 þotu sem fór einnig í loftið frá Sheremetyevo-flugvellinum áleiðis til Istanbul og hafi sú
flugvél snúið við og lent í St. Petersburg.
Fram kemur að rannsókn sé enn í gangi vegna flugslyss sem átti sér stað í Rússlandi þann 11. febrúar
er farþegaþota af gerðinni Antonov An-148 fórst skömmu eftir flugtak frá Domodedovo-flugvellinum í
Moskvu með þeim afleiðingum að allir þeir 71, sem voru um borð, létust.
Talið er að ísing í stemmuröri („pitot tubes“) á þotunni hafi orsakað það flugslys.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.