flugfréttir
Guðrún Tinna ráðin rekstarstjóri Fríhafnarinnar
Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur verið ráðin til Fríhafnarinnar sem rekstarstjóri verslunarsviðs
Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur verið ráðin til Fríhafnarinnar sem rekstarstjóri verslunarsviðs sem er nýtt starf og hluti af skipulagsbreytingum hjá fyrirtækinu.
Tinna mun hefja störf í byrjun apríl. Undir verslunarsvið heyrir daglegur rekstur verslana Fríhafnarinnar, ásamt almennum sölu-, markaðs- og rekstarmálum.
Tinna er með M.S. gráðu í fjármálum. Hún hefur víðtæka og góða reynslu af smásölu, rekstri, markaðsmálum og stefnumótun. Hún hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri íslenska barnafatamerkisins Ígló ehf. og hjá Baugi Group þar sem hún vann með stjórnendum smásölufyrirtækja í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi.
Þar áður starfaði Tinna hjá Kauphting Bank Luxembourg og Verðbréfamarkaði Íslandsbanka. Í dag situr Tinna í stjórn fasteignafélagsins Regins hf. og er stjórnarformaður Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna.
Tinna er gift Karli Pétri Jónssyni og saman eiga þau fimm börn.
„Við erum spennt og ánægð að fá reynslumikinn stjórnanda eins og Tinnu til liðs við öflugan hóp Fríhafnarstarfsmanna“ segir Þorgerður Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar.
„Fríhöfnin er í alþjóðlegu og síbreytilegu umhverfi og á skömmum tíma hafa orðið mjög hraðar breytingar á starfsumhverfinu. Til að vera betur í stakk búin til að takast á við nýjar áskoranir höfum við verið í stefnumótun og skipulagsbreytingum. Tinna hefur góða þekkingu og reynslu af smásölu og rekstri sem nýtist vel í það kerfjandi verkefni að stýra verslunarsviði Fríhafnarinnar“ segir Þorgerður.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.