flugfréttir
Aegean Airlines pantar 30 A320neo þotur
Airbus A320 þota Aegean Airlines
Gríska flugfélagið Aegean Airlines hefur gert samkomulag við Airbus um kaup á þrjátíu farþegaþotum af gerðinni Airbus A320neo og A321neo.
Flugfélagið ætlar að panta tuttugu A320neo þotur og tíu A321neo þotur með
kauprétti á fleiri flugvélum til viðbótar.
Aegean Airlines hefur eingöngu Airbus-vélar í flota sínum sem
telur 48 þotur af gerðinni Airbus A319, A320 og Airbus A321.
Félagið lýsti því yfir í september í fyrra að verið væri að skoða möguleika
á annað hvort Airbus A320neo eða Boeing 737 MAX.
Eftichios Vassilakis, varaformaður Aegean Airlines, segir að eftir vel ígrundaða
umhugsun hafi verið ákveðið að velja Airbus þar sem A320 þykir besti
kosturinn fyrir flugfélagið.
Gert er ráð fyrir að pöntunin verði staðfest í júní í sumar og verð hreyflategund
valin í júlí.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.