flugfréttir
Tenerife Norte verður þriðja bækistöð Norwegian á Kanarí
Boeing 737-800 þota Norwegian í lendingu á Tenerife Norte flugvellinum
Norwegian hefur gert nyrðri flugvöllinn á Tenerife að bækistöð sinni þar sem félagið verður með eina flugvél staðsetta til að byrja með.
Tenerife Norte verður þriðja bækistöð félagsins á Kanaríeyjum og á sú áttunda
á Spáni en Norwegian mun fljúga innanlandsflug frá Tenerife Norte til Madrídar, Barcelona
og til Alicante.
Með þessu verður Norwegian með alls átta flugvélar staðsettar á Kanaríeyjum
og munu umsvif félagsins frá eyjaklasanum aukast um 16 prósent á þessu ári til meginlands
Spánar með sætaframboð upp á 560.000 sæti.
Norwegian flýgur til fimm flugvalla á Kanaríeyjum sem eru Fuerteventure, Lanzarote,
Las Palmas, Tenerife Sur og frá Tenerife Norte.
Áfangasaðir Norwegian frá Kanarí eru alls 19 talsins og eru þeir Barcelona, Stokkhólmur, London Gatwick, Osló, Bergen, Kaupmannahöfn,
Þrándheimur, Gautaborg, Stavanger, Dusseldorf, Edinborg, Róm,
Berlín, Bilbao, Köln, Helsinki, Oulu, Madríd og Alicante.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.