flugfréttir
Samgöngustofa gefur út myndband um notkun dróna
Skjáskot af nýju myndbandi sem Samgöngustofa hefur gefið út
Samgöngustofa hefur látið útbúa myndband þar sem kynntar eru helstu reglur og þau atriði sem hafa ber í huga þegar verið er að fljúga fjarstýrðum loftförum á borð við dróna.
Drónaeign hefur færst í aukanna hér á landi sem og í öðrum löndum
og hafa reglulega borist fregnir erlendis frá þar sem dróna hefur verið flogið
mjög nálægt flugvélum.
Þegar dróni hefur sig á loft er hann komin upp í lofthelgi, hvort
sem er um að ræða stjórnaða og óstjórnaða lofthelgi, og sé honum flogið
í of mikilli hæð þá getur það skapað hættu gagnvart flugvélum.
Í reglugerð á vef Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins má
lesa lög um starfrækslu fjarstýrða loftfara þar sem finna má hugtök, reglur
um þyngd dróna, notkun innan og utan þéttbýlis, takmarkanir auk viðurlaga.
Samgöngustofa hefur áður gefið út notendaleiðbeiningar um notkun dróna, bæði
á íslensku og ensku, en nú eru leiðbeiningarnar komnar út í formi myndbands
þar sem farið er yfir helstu reglur og atriði.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.