flugfréttir
Tölvukerfi Boeing varð fyrir vírus
Fram kemur að spilliforritið hafi breiðst hratt út í allt tölvukerfið í verksmiðjum Boeing í North Charleston í Suður-Karólínu
Tölvukerfi hjá Boeing varð tölvuvírusi að bráð er spilliforrit komst inn í tölvukerfi hjá flugvélaframleiðandanum.
Boeing segir að búið sé að lagfæra tölvukerfið og eyða spilliforritinu en félagið segir að kerfisfræðingar í tölvudeildinni
hafi komið auga á vandamálið í nokkrum kerfum vegna forritsins.
Fram kemur að spilliforritið hafi breiðst hratt út í allt tölvukerfið í verksmiðjum Boeing í North Charleston
í Suður-Karólínu þar sem Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 og Boeing 787-10 eru framleiddar.
Það var yfirverkfræðingur hjá Boeing sem sendi tilkynningu um málið til dagblaðsins The Seattle Times sem
greindi fyrst frá þessu en þar kemur fram að um var að ræða spilliforritið WannaCry sem ríkisstjórn Bandaríkjanna
telur að eigi uppruna sinn í Norður-Kóreu.
Boeing segir að tölvuvírusinn hafi ekki haft nein áhrif á starfseminni í verksmiðjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.