flugfréttir
Ný leyfi gefin út vegna flugs til Kúbu
Bandarísk flugfélög fengu í mars árið 2016 leyfi til að hefja flug til Kúbu
Samgönguráðuneyti Bandaríkjanna hefur gefið fimm flugfélögum aukið leyfi fyrir áætunarflugi til Kúbu.
Það eru American Airlines, Delta Air Lines, Southwest Airlines, JetBlue og United Airlines sem hafa fengið til
saman leyfi fyrir 34 vikulegum flugferðum sem bætast við þær flugferðir sem félögin hafa nú þegar
flogið frá því að 50 ára farbanni til eyjunnar frá Bandaríkjunum var afnumið fyrir tveimur árum síðan.
Öll leyfin eru veitt fyrir flugi til Havana en flugfélögin fjögur munu fljúga til borgarinnar frá Miami,
Fort Lauderdale, Boston og Houston en flug frá Boston til Kúbu er ný flugleið sem JetBlue
hefur fengið úthlutað.
FedEx var eina flugfélagið sem fékk höfnun fyrir umsókn sinni um flug til Kúbu en félagið
hafði ætlað sér að hefja flug til Havana með Cessna 208 fraktflugvél.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.