flugfréttir
Einkaþota lenti án leyfis á lokaðri flugbraut í Finnlandi
- Lenti innan um vinnubíla og verkamenn
Atvikið átti sér stað þann 22. mars sl. á Kokkala-Pietersaari flugvellinum í Finnlandi
Mjög alvarlegt atvik átti sér stað á dögunum er einkaþota lenti á flugvelli í Finnlandi án heimildar frá flugturni.
Atvikið átti sér stað þann 22. mars á Kokkala-Pietersaari flugvellinum í Finnlandi
en þotan lenti á lokaðri flugbraut sem var ekki í notkun vegna framkvæmda.
Tvö ökutæki voru á flugbrautinni þar sem verkamenn voru að störfum við endurbætur á brautinni og
var þriðja ökutækið að aka inn á brautina þegar einkaþotan kom í aðflugi að brautinni.
Flugumferðarstjórar höfðu ítrekað sagt flugmönnunum að lenda ekki á brautinni en ekkert svar barst frá þeim
en einkaþotan var að koma frá Svíþjóð og voru fjórir farþegar um borð í þotuni.
Atvikið er flokkað sem mjög alvarlegt atvik þar sem einkaþotan lenti innan um vinnuvélar og tæki og hefði atvikið getað
endað með stórslysi. Þar að auki voru veðurskilyrði slæm og aðeins 600 metra skyggni á flugbrautinni.
Veli-Pekka Nurmi, yfirmaður yfir rannsóknardeild flugslysa í Finnlandi, segir að rannsókn á atvikinu sé nú þegar
hafin og er búist við því að rannsóknin geti tekið um hálft ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.