flugfréttir

Flugstjóri vill aukin lög um dróna og harðari refsingar

- Tvö atvik í mars þar sem drónum var flogið í veg fyrir þotur í Auckland

3. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:20

David Morgan, yfirflugstjóri hjá Air New Zealand, vill herða lög og reglugerðir varðandi dróna

Air New Zealand fer fram á að reglugerðir um dróna verði hertar eftir að litlu munaði að farþegaþota frá flugfélaginu nýsjálenska hefði lent í árekstri við dróna á dögunum.

Þota félagsins, sem er af gerðinni Boeing 777-200, var að koma inn til lendingar á flugvellinum í Auckland á Nýja-Sjálandi þann 25. mars sl. þegar atvikið gerðist.

Dróninn fór það nálægt flugvélinni að flugmennirnir höfðu mestar áhyggjur yfir því að hann myndi fara inn í hreyflana.

Flugmennirnir komu auga á drónann á þeim tímapunkti að ekki var hægt að bregðast við með neinum ráðum þar sem vélin var á lokastefnu að brautinni.

David Morgan, yfirflugstjóri hjá Air New Zealand og flugrekstarstjóri félagsins, segir að það sé augljóst að það verði að setja stólinn fyrir dyrnar fyrir alvöru til að koma í veg fyrir háskalega notkun á drónum í návígi flugvalla.

Boeing 777-200 þotan var að koma inn til lendingar í Auckland þegar
dróna var flogið í veg fyrir hana

Morgan segir að drónatilvikum fari fjölgandi á Nýja-Sjálandi og verði yfirvöld að tryggja öryggi almennings með enn strangari lögum um notkun þeirra, aukinni fræðslu og harðari refsingum.

„Það er komið að því að við verðum að taka hart á þessu og uppræta glæfralega notkun á drónum í kringum flugvelli“, segir Mogran sem leggur til að fangelsisdómur verði tekin upp gagnvart athæfum af þessum toga.

Í dag eru viðurlög við notkun á drónum í návígi nýsjálenskra flugvalla sekt upp á 350.000 krónur en reglugerð fer fram á að drónum sé ekki flogið nær flugvöllum en sem nemur 4 kílómetrum.

Margir drónar koma í dag með hugbúnaði sem læsir notkun þeirra ef verið er að fljúga þeim nálægt flugvöllum og yfir bannsvæði en vitað er að mjög auðvelt er að gera þann búnnað óvirkan.

Þetta er í annað skiptið sem dróna er flogið í veg fyrir farþegaþotu á flugvellinum í Auckland á Nýja-Sjálandi í marsmánuði en þann 6. mars stöðvaðist flugumferð í um hálftíma á sama flugvelli eftir að flugmaður kom auga á dróna í lofthelginni við flugvöllinn í aðflugi.

Air New Zealand hefur birt á vefsíðu sinni stuðningsyfirlýsingu gegn hertari lögum gegn drónanotkun þar sem skorað er á að yfirvöld grípu í taumana.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga