flugfréttir
Prófunum lokið í Keflavík með kínversku ARJ21 þotuna
- Mesti hliðarvindur í flugprófunum mældist 48 hnútar
Kínverska ARJ21 þotan á Keflavíkurflugvelli í byrjun mars
Kínverska ARJ21 farþegaþotan frá COMAC hefur lokið við flugprófanir í Keflavík þar sem tilraunir hafa staðið yfir með flugvélina í hliðarvindi.
Mánuður er síðan að vélin kom til Íslands og hafa kínverskir flugmenn og áhöfn vélarinnar dvalið hér á landi
en prófunum lauk þann 26. mars.
Yfirvöld í Kína segja að af þeim prófunum sem fór fram þá áttu sér stað sex flugtök og lendingar í hliðarvindi
þar sem meðalvindhraði í flugtaki var um 38 hnútar og meðalvindur í lendingu var 34.9 hnútar.
Þá kemur fram að mesti hliðarvindur sem mældist í tilraunum þessa daganna hafi farið upp í 48.7 hnúta sem
er yfir þeim mörkum sem framleiðandinn gefur út fyrir ARJ21 þotuna.
Hönnun þotunnar gerir ráð fyrir hliðarvindi upp á 30 hnúta í flugtaki og 27 hnúta í lendingu en aðeins var hægt
að votta vélina fyrir hliðarvind upp á 20 hnúta í Kína áður en þotan kom til Íslands.
Fram kemur að kínversk flugmálayfirvöld hafi nú þegar vottað niðurstöðurnar úr hliðarvindsprófununum á Íslandi
en þotan mun í framhaldi af því gangast undir enn frekar prófanir er varðar veðurfarsleg skilyrði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.