flugfréttir
WOW air flýgur til þriggja borga í Rússlandi vegna HM
Airbus A321 þota WOW air
WOW air ætlar sér að bjóða upp á nokkur sérstök leiguflug vegna Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í Rússlandi í sumar með flugi til þriggja borga.
Rússnesku borgirnar þrjár sem flogið verður til er Moskva, Rostov-on-Don og Volgograd en eitt flug fram og til
baka verður flogið til hverrar borgar og er því um sex flugferðir að ræða.
Til Moskvu verður flogið þann 15. júní í tengslum við leik Íslendinga gegn Argentínu og til baka verður
flogið heim þann 17. júní. Ekki er búið að ákveða til hvaða flugvallar í Moskvu verður flogið til.
Til Volgograd verður flogið út þann 21. júní í tengslum við leik Íslands gegn Nígeríu og verður flogið
til baka heim þann 23. júní.
Til Rostov-on-Don verður flogið þann 25. júní vegna leiks Íslendinga gegn Króatíu og til baka verður flogið
þann 27. júní.
Flugin til Moskvu, Rostov-on-Don og Volgograd eru bókanleg nú þegar á vefsíðu WOW air en flogið
verður með þotum af gerðinni Airbus A321 og Airbus A330.
Ódýrasta flugið til Moskvu kostar með WOW air 69.999 krónur aðra leiðina, til Rostov-on-Don
er ódýrasta fargjaldið 59.999 krónur aðra leiðin og til Volgograd kostar miðinn einnig 59.999 krónur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.