flugfréttir
Singapore Airlines hefur áhuga á Boeing 797
Goh Choon Phong, framkvæmdarstjóri Singapore Airlines
Singapore Airlines hefur áhuga á Boeing 797, nýju farþegaþotunni sem Boeing er að spá að hefja þróun á.
Goh Choon Phong, framkvæmdarstjóri Singapore Airlines, segir að félagið sé að skoða hvort að slík þota
myndi henta fyrir félagið og telur hann góðar líkur á að Boeing 797 myndi passa fyrir dótturflugfélagið Scoot.
Framkvæmdarstjórinn segir að Boeing muni láta af hendi á næstunni ítarlegar upplýsingar um framtíðarþotuna
til Singapore Airlines og muni það gefa þeim þá betri mynd á hvernig Boeing 797 muni henta félaginu.
Singapore Airlines er einn stærsti viðskiptavinur Boeing og hefur félagið tugi breiðþotna í flotanum af gerðinni
Boeing 777 og Boeing 787 en félagið tók á dögunum við fyrstu Boeing 787-10 þotunni sem er lengsta Dreamliner-þotan.
Boeing byrjaði að kynna nýju farþegaþotuna lauslega á flugsýningunni í París í fyrra en framleiðandinn hefur
enn ekki ýtt verkefninu formlega úr vör.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.