flugfréttir

FedEx ætlar að þjálfa sína eigin flugmenn

- Fara af stað með „Purple Runway“ verkefnið

4. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:03

FedEx hefur ákveðið að feta í fótspor annarra flugfélaga sem hafa ákveðið að þjálfa sína eigin flugmenn frá grunni

Vöruflutningarisinn FedEx hefur ákveðið að tryggja stöðu sína gagnvart flugmannaskorti með því að setja á laggirnar flugnámsleið þar sem fyrirtækið ætlar að þjálfa sína eigin framtíðarflugmenn.

Verkefnið, sem nefnist „Purple Runway - A FedEx Pathways Program“, miðast af því að fá inn nemendur úr háskólum Bandaríkjanna auk þeirra flugnema sem eru nú þegar í námi í flugskólum vestanhafs.

Með þessu ætlar FedEx að sjá til þess að fyrirtækið verði áfram fremst á sviði vöruflutninga í heiminum án þess að skortur á flugmönnum geti haft áhrif á þau markmið.

Purple Runway er samstarfsverkefni FedEx Express, Mountain Air Cargo
og Empire Airlines

Í dag eru 660 flugvélar sem fljúga fyrir FedEx um allan heim en félagið hefur sjálft 376 þotur í flotanum ef gerðinni Airbus, Boeing og McDonnell Douglas en þá eru 284 minni flugvélar sem fljúga fyrir FedEx sem starfræktar eru af öðrum flugfélögum.

FedEx hefur að undanförnu pantað 120 nýjar flugvélar sem á eftir að afhenda sem eru af gerðinni Cessna 408 SkyCourier, ATR 72-600F og Boeing 777F og þarf því að tryggja að nægur hópur flugmanna sé tiltækur til að fljúga þessum flugvélum í framtíðinni.

Purple Runway er samstarfsverkefni FedEx Express, Mountain Air Cargo og Empire Airlines en félögin tvö síðarnefndu eru stærstu flugrekstaraðilarnir sem sjá um að fljúga fyrir FedEx.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga