flugfréttir
Opið hús í Flugakademíu Keilis á laugardag
Flugakademía Keilis hefur tvo flugherma í Ásbrú
Flugakademía Keilis verður með opið hús, laugardaginn 7. apríl næskomandi kl. 12 - 14, þar sem gestir geta kynnt sér alþjóðlegt flugvirkjanám og atvinnuflugnám í fremstu röð.
Hægt verður að skoða stærsta flugvélamótor á landinu, fá sér sæti í orrustuþotu og skoðaðu fullkomna flugherma Flugakademíunnar ásamt því að fræðast um námið og starfsmöguleika að því loknu.
Kynningarnar fara fram í verklegri aðstöðu flugvirkjanámsins að Funatröð 8 og í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Hægt verður að kynna sér námið og skoða aðstöðuna ásamt því að hitta nemendur og kennara.
Í fréttatilkynningu frá Flugakademíu Keilis kemur fram að pyslur og gos verða í boði í Funatröð og eru allir velkomnir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.