flugfréttir
Bresk yfirvöld leituðu um borð í þotu Aeroflot á Heathrow
- Rússar krefjast þess að fá svör
Bretar segja að leitin hafi verið gerð að handahófi og tengist ekki Rússum sjálfum á neinn hátt
Rússar krefjast þess að fá útskýringu frá Bretum á því hvers vegna leit var framkvæmd um borð í farþegaþotu Aeroflot á dögunum við komuna til Lundúna.
Þota frá Aeroflot lenti á Heathrow-flugvellinum í London þann 30. mars eftir áætlunarflug frá Moskvu
en við komuna fóru aðilar frá breskum tollayfirvöldum um borð án þess að útskýra fyrir áhöfninni hver
tilgangur leitarinnar væri.
Stjórnvöld í Rússlandi krefjast þess að fá tafarlaust svar en ef bresk yfirvöld munu ekki gefa upp
ástæðuna þá er hótað sambærilegum aðgerðum í garð breskra flugfélaga sem fljúga til Rússlands.
Sendiráð Rússlands í Bretlandi segir að bresk tollayfirvöld hafi gert tilraun til að framkvæma leit á þeim tíma
þegar enginn var um borð í þotunni en flugstjóri vélarinnar féllst ekki á það og var viðstaddur leitina.
Samgönguráðherra Rússlands segir að ef Bretar svara ekki fyrirspurn Rússa varðandi leitina þá verði litið á hana sem ólögmæta aðgerð og svarað verður í sömu mynt.
Ben Wallace, öryggisráðherra Bretlands, sagði í yfirlýsingu sinni þann 31. mars sl. að um
handahófskenda leit hafi verið að ræða af hálfu landamæraeftirlitsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.