flugfréttir
China Eastern varar við afleiðingum af viðskiptastríði
- Gæti haft áhrif á afhendingar á nýjum þotum frá Boeing
Boeing 777 þota China Eastern Airlines í flugtaki á John F. Kennedy flugvellinum í New York
China Eastern Airlines, annað stærsta flugfélag Kína, hefur varað við því að viðskiptastríðið milli Bandaríkjanna og Kína gæti haft áhrif á pöntun félagsins hjá Boeing.
Ma Xulun, framkvæmdarstjóri China Eastern Airlines, segir að bæði Bandaríkin og Kína muni tapa á viðskiptastríði
en félagið hefur pantað 60 Boeing 737 MAX þotur auk þess sem félagið á von á fimmtán Dreamliner-þotum og 25 þotum af gerðinni Boeing 737-800.
Félagið segir að viðskiptastríð muni hafa áhrif á farþega og fraktflutinga og einnig á framtíðaráform félagsins er kemur
að því að bæta við nýjum þotum.
China Eastern Airlines er að meta stöðuna og segir að þessvegna komi til að hætta flugi milli Kína og Bandaríkjanna
ef ástandið versnar enn frekar og fresta einhverjum afhendingum en félagið á von á 52 nýjum þotum á þessu ári.
„Við munum gera breytingar hjá okkur á flota félagsins ef það dregur úr farþegafjölda á flugi milli Kína og
Bandaríkjanna til að mynda með því að skipta yfir í Airbus A330 í Ameríkuflugi í stað Boeing 777“, segir markaðsstjóri
China Eastern Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.