flugfréttir
Þjónustukerfi féll ofan á farþega í lendingu
Atvikið átti sér stað á flugvellinum í Dallas sl. laugardag
Farþegaþjónustukerfi (Passenger Service Unit) losnaði og féll niður úr lofthólfi á Boeing 777-300 hjá American Airlines er þotan var að lenda á Dallas/Fort Worth flugvellinum í Texas sl. helgi.
Vélin var að koma frá Hong Kong en þegar vélin lenti féll kerfið niður ásamt búnaði með
súrefnisgrímu sem féll ofan á höfuð eins árs barns sem sat í kjöltu 33 ára gamallar móður sinnar.
Áhöfn vélarinnar bað konuna um að bíða í vélinni eftir að starfsmanni frá flugvellinum til að aðstoða
þau en hann kom aldrei um borð.
Það var ekki fyrr en flugmennirnir voru að yfirgefa vélina að þeir tóku eftir mæðgininum og fylgdi flugstjórinn þeim frá borði og bað þau afsökunar.
Í yfirlýsingu frá American Airlines kemur fram að flugfélagið hafi haft samband við konuna
og boðist til að fá upplýsingar um atvikið sem litið er alvarlegum augum.
Viðgerð hefur farið fram og er nú verið að skoða hvað orsakaði að kerfið losnaði og féll niður í lendingu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.