flugfréttir

Síðasta flug Virgin America eftir tvær vikur

10. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:39

Airbus A320 þota Virgin America

Virgin America mun fljúga sitt síðasta flug þann 24. apríl en eftir þann dag mun flugfélagið heyra sögunni til.

Virgin America var stofnað árið 2004 af auðkýfingnum Richard Branson og átti félagið upphaflega að heita „Virgin USA“ en nafni þess var breytt skömmu síðar.

Félagið flaug sitt fyrsta áætlunarflug þann 8. ágúst árið 2007 frá Los Angeles til San Francisco og sama dag flaug félagið frá San Francisco til New York.

Virgin America var fyrsta bandaríska flugfélagið til að bjóða farþegum upp á þráðlaust internet um borð og vann félagið sér inn miklar vinsældir frá farþegum sem hafa frá stofnun félagsins líkað mjög vel við Virgin America.

Virgin America hefur hlotið fjölmörg verðlaun í flugiðnaðinum m.a. fyrir besta afþreyingarkerfið um borð, bestu hönnun í markaðssetningu, besta lágfargjaldafélagið í Ameríku, besta þjónusta um borð, bestu lýsingu í farþegarými auk þess sem það var valið besta flugfélag Bandaríkjanna 4 ár í röð frá 2013 til ársins 2016 af Airline Quality Rating. 

Árið 2016 keypti Alaska Airlines allan rekstur félagsins og var tilkynnt að Virgin America myndi sameinast rekstri þess. Skömmu síðar var ákveðið að félagið myndi ekki fljúga undir nafni Virgin America og yrðu því um samruna að ræða og nafnið hverfa á braut.

Síðasta flug Virgin America verður flug milli San Francisco og Los Angeles en nú þegar er verið að mála allan flugflota félagsins í litum Alaska Airlines sem hefur nú þegar tekið við rekstri á fyrstu Airbus A320 þotum félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga