flugfréttir
Emirates sendir varahluti með hraði fyrir önnur flugfélög
- Emirates AOG ný þjónusta hjá Emirates SkyCargo
Emirates AOG mun veita flugfélög aðstoð með því að senda varahluti án tafar til þeirra staða þar sem flugvél er biluð
Emirates SkyCargo, fraktflugsfélag Emirates, hefur stofnað sérdeild sem nefnist Emirates AOG sem mun sérhæfa sig í að flytja varahluti í flugvélar með skjótum hætti milli heimshorna á þeim stöðum þar sem viðkomandi varahlutur er ekki til staðar.
Markmið Emirates AOG er að senda varahluti eins fljótt og hægt er án þess að það bitni á gæðum og þjónustu
en flest flugfélög lenda í miklum vanda þegar flugvél er föst á flugvelli í öðru landi þar sem varahlutir eru ekki tiltækir
og tekur oft langan tíma að senda hann.
Emirates AOG mun sjá til þess að varahlutir verða afgreiddir hratt og örugglega og mun ekki líða meiri tími en 2:30
klukkustundir þar til flugvél er lent með varahlut og þar til hann er afhentur á þeim stað þar sem viðgerð fer fram.
Emirates SkyCargo hefur einnig útbúið sérstakan „must go“ poka sem er rauður á lit sem hægt er að nota fyrir smærri
varahluti sem þurfa að sendast án tafar og auðveldar starfsmönnum að sjá hvaða sending þolir enga bið.
Emirates flýgur til 155 áfangastaða í sex heimsálfum og segir félagið að vegna þessarar sérstöðu sinnar sé mjög miklar
líkur á að flugvél sem bilar hjá öðrum flugfélögum sé annað hvort á sama flugvelli og Emirates flýgur til eða nálægt
næsta flugvelli í leiðarkerfinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.