flugfréttir
Herflugvél með yfir 250 manns um borð fórst í Alsír
Herflugvélin var af gerðinni Ilyushin Il-76 og voru 257 manns um borð
Talið er að allt að 250 manns hafi látið lífið í flugslysi í Alsír í morgun er herflutningavél af gerðinni Ilyushin Il-76 frá alsírska flughernum fórst skömmu eftir flugtak í norðurhluta landsins.
Um borð í vélinni voru 257 manns og þar af tíu manna áhöfn og er talið að engin
hafi komið lífs af
en flestir þeirra sem voru um borð voru hermenn auk fjölskyldna þeirra.
Flugvélin fór í loftið frá Boufarik-herflugvellinum nálægt höfuðborginni Algeirsborg og
var förinni heitið til bæjarins Bechar í suðvesturhluta Alsír.
Orsök slyssins eru enn ókunn en flugslys í hernaði í Alsír hafa verið mjög tíð undanfarin
ár en til að mynda fórst sambærileg herflugvél í febrúar árið 2014 með þeim afleiðingum að 77
manns týndu lífi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.