flugfréttir
Fyrsta Airbus A330-900neo þota WOW air í lokasamsetningu
- Stefna á fyrsta farþegaflugið með A330neo fyrir lok ársins
Mynd af fyrstu Airbus A330-900 þotu WOW air í samsetningarsal Airbus í Toulouse
Fyrsta Airbus A330neo þota WOW air er komin í samsetningarsal Airbus í Toulouse og gengst nú undir lokasamsetningu.
WOW air pantaði fjórar Airbus A330-900neo þotur í mars í fyrra sem var hluti af pöntun í sjö nýjar þotur frá Airbus.
WOW air stefnir á að fljúga fyrsta flugið með Airbus A330neo fyrir lok ársins en A330-900 er stærri útgáfan af þessari
nýju kynslóð Airbus A330 breiðþotnanna.
WOW air hefur í dag þrjár Airbus A330 breiðþotur í flotanum, TF-GAY, TF-LUV og TF-WOW en aðeins eru tæp 2 ár síðan að fyrsta breiðþotan kom í flota WOW air sem var TF-GAY sem kom til landsins í maí 2016.
Airbus A330-900 þotur WOW air munu koma með Trent 7000 hreyflum frá Rolls-Royce sem mun gera þoturnar
14% sparneytnari samanborið við hefðbundnar A330-300 þotur.
WOW air tekur A330-900 þoturnar á leigu frá CIT Aerospace International og mun hver breiðþota taka 365 farþega í sæti og þar af 42 sæti sem verða breiðari og með meira sætabili.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.