flugfréttir

Telja flugvélar orðnar stærri, háværari og fljúga lægra yfir

- Kvörtun íbúa vegna hávaða frá Montréal-flugvelli fer fyrir dóm

12. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:56

Hópurinn var stofnaður af þeim íbúum sem búa undir aðflugi að Montréal-flugvellinum

Hópur íbúar í Montréal í Kanada segjast orðnir mjög þreyttir á hávaða frá flugumferðinni sem fer um Elliott Trudeau alþjóðaflugvöllinn í borginni og telja þeir að flugvélar séu farnar að búa til meiri hávaða og fljúga lægra en þær gerðu.

Hópurinn var stofnaður af þeim íbúum sem búa undir aðflugi að flugbrautum vallarins og fagnar hópurinn því að dómstóll í borginni hafi ákveðið að taka við kvörtunarmáli þeirra og fara með það fyrir réttarhöld.

„Hávaðinn er óþolandi og fólk hefur fengið nóg“, segir Pierre Lachapelle, formaður hópsins Les Pollués de Montréal-Trudeau sem hefur höfðað mál gegn kanadísku flugumferðarstjórninni, flugvellinum í Montréal og Samgöngusráðuneyti Kanada.

„Á sumrin, ef maður er með gluggana opna á föstudagskvöldi, þá koma flugvélarnar yfir og stundum á tveggja mínútu fresti“, er haft eftir einum íbúanum í málsgögnum.

Roger Trottier, einn íbúi sem búið hefur í Saint-Laurent hverfinu frá árinu 1994, segir að á nokkrum árum hafi flugvélarnar orðið stærri, þeim fjölgað, orðnar háværari og svo virðist sem þær séu farnar að fljúga lægra yfir en þær gerðu á árum áður.

Roger Trottier hefur búið í nágrenni flugvallarins í Montréal frá árinu 1994

„Núna eru þetta orðið þannig að það eru 60 til 70 flugvélar sem fljúga yfir húsið frá klukkan 23:00 til 7:00 á morgnanna“, segir Trottier.

Samkvæmt hávaðamælingum á vegum Aérports de Montréal þá mældist mesti hávaðinn frá flugvellinum í Montréal 63 desibil í Dorval-hverfinu árið 2015 en samkvæmt reglugerðum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni þá er mælt með að fólki þurfi ekki að búa við meiri hávaða en sem nemur 55 desibilum en kanadískur staðall miðast hinsvegar við 65 desibil.

Í framhaldi af lögsókninni þá munu yfirvöld fara fram á að fá gögn með upplýsingar um þann hávaða sem mælist í nærliggjandi hverfum frá flugvélum í lendingum og flugtaki.

Gérard Samet, lögfræðingur íbúahópsins, fagnar ákvörðuninni að málið sé að fara fyrir réttarhöld og sérstaklega í ljósi þess að eins stór flugvöllur og Montréal á í hlut.

Fjöldi fréttamanna mætti á blaðamannafund í gær er staðfest var að málið myndi fara fyrir dóm á næstunni







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga