flugfréttir
Fyrsta flug Delta með CS100 þotunni áætlað árið 2019
- Fá fyrstu þoturnar af 75 afhentar fyrir lok ársins
Tölvugerð mynd af CS100 þotu í litum Delta Air Lines
Delta Air Lines gerir ráð fyrir að fljúga fyrsta flugið með nýju CSeries-þotunni árið 2019 en flugfélagið bandaríska mun fá fyrstu CS100 þotuna afhenta síðar á þessu ári.
Delta pantaði 75 þotur ef gerðinni CS100 frá Bombardier árið 2016 og er þeim
ætlað að leysa af hólmi minni 76 sæta smáþotur á þeim flugleiðum
þar sem eftirspurn eftir flugsætum hefur aukist.
Bombardier hefur ætlað sér að afhenda fjörutíu CSeries-þotur til viðskiptavina
sinna á þessu ári og hefur afhendingaráætlunin staðist hingað til með
einni afhentri CSeries-þotu á viku að meðaltali.
Delta Air Lines ætlaði að taka við fimmtán CS100 þotum á þessu ári en
tafir urðu á afhendingum hjá Bombardier auk þess sem viðskiptadeilur
milli Bandaríkjanna og Kanada settu strik í reikninginn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.