flugfréttir
Emirates fækkar flugferðum vegna skorts á flugmönnum
- Vantar 100 til 150 flugmenn til viðbótar til að sinna sumaráætluninni
Frá flugvellinum í Dubai
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að til standi að fækka flugferðum í sumar þar sem ekki er nægilegur fjöldi flugmanna tiltækur til þess að fljúga þotum félagsins.
Emirates ætlar sér m.a. að draga úr tíðni á flugi til Bandaríkjanna og
til Evrópu en til að halda úti sumaráætluninni sem fer að taka í gildi
þyrfti Emirates að hafa 100 til 150 fleiri flugmenn.
Meðal annars verður flogið aðeins fimm sinnum í viku til Fort Lauderdale og til Orlando en hingað til hefur félagið flogið daglega til þessara áfangastaða.
Þá verður dregið úr tíðni á flugi til einhverra áfangastaða í Evrópu og í Asíu
og verður flugferðum fækkað til London Heathrow, Munchen, Bangkok og til
Phuket.
Tim Clark er bjartsýnn á framtíðarhorfur Emirates og segir aðeins
um tímabundið ástand að ræða þar sem fjöldi flugmanna verður komin
aftur í eðlilegt horf í september eða október.
Þrátt fyrir þetta þá heldur leiðarkerfi Emirates áfram að stækka og nálgast áfangastaðir félagsins nú 150 borgir
í 75 löndum og bætist Santiago í Chile við í sumar auk þess sem félagið mun byrja að fljúga
á Stansted-flugvöllinn í Lundúnum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.